REGLUR UM STYRKVEITINGAR
1. Lagastoð og gildissvið
1.1 Reglur þessar eru settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 55/1992.
1.2 Reglur þessar kveða á um meðferð og afgreiðslu styrkumsókna til Viðlagatryggingar Íslands.
2. Styrkhæf verkefni
Heimilt er að veita styrki til:
2.1 Rannsókna
2.2 Framkvæmda til að varna eða draga úr tjóni vegna náttúruhamfara
2.3 Fræðslu og þjálfunarmála landssamtaka sem eru með samstarfssamning við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra um skipan hjálparliðs.
3. Umsóknir um styrki verkefna
3.1 Auglýsingar með upplýsingum um forsendur styrkveitinga og umsóknarfrest skal birta í helstu fjölmiðlum fyrir 15. janúar ár hvert.
3.2 Umsóknarfrestur er til 15. febrúar ár hvert.
3.3 Styrkveitingar eru til afgreiðslu á fundi í mars ár hvert.
3.4 Styrkumsókn skal fylgja greinargerð þar sem lýst er á hvern hátt umrætt verkefni stuðli að því að efla forvarnir eða draga úr tjóni á tryggðum eignum vegna náttúruhamfara.
3.5 Styrkumsókn skal fylgja tíma- og kostnaðaráætlun.
3.6 Styrkumsókn skal fylgja staðfesting á fjárframlagi frá öðrum styrktaraðilum verkefnisins eða vilyrði um fjárstyrk eða fjárframlagi frá öðrum aðilum eftir því sem við á.
4. Viðmið um úthlutun styrkja
4.1 Verkefnið skal hafa forvarnargildi með tilliti til þeirra vátryggðu hagsmuna sem í húfi eru.
4.2 Huga þarf að fordæmisgildi styrkveitingar ef allir þeir aðilar sem hugsanlega ættu tilkall til styrkveitingar af sama tagi sæktu til stofnunarinnar.
4.3 Verkefnið gæti verið styrkhæft ef það hefur rannsóknargildi og eflir forvarnir og/eða þekkingu á þeim náttúruhamförum sem Viðlagatrygging Íslands tryggir gegn.
4.4 Að öllu jöfnu eru ekki veittir styrkir til verkefna sem njóta annarra reglubundinna styrkja frá opinberum aðilum, eins og t.d. Ofanflóðasjóði eða verkefna sem eru á fjárlögum ríkisins.
4.5 Almennt skal miðað við að framlag komi frá öðrum aðila eða aðilum til þeirra verkefna sem Viðlagatrygging styrkir þannig að framkvæmd verkefnis byggist ekki einvörðungu á framlagi stofnunarinnar.
4.6 Við styrkveitingar til fræðslu- og þjálfunarmála hjálparliðs skal liggja fyrir staðfesting Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra á því að viðkomandi landssamtök hafi samstarfssamning við Almannavarnadeildina.
4.7 Við úthlutun styrkja til fræðslu- og þjálfunarmála hjálparliðs skal taka tillit til með hvaða hætti þjálfunin nýtist aðgerðum vegna náttúruhamfara.
5. Upplýsingagjöf til stjórnar
5.1 Í lok styrkveitingatímabils eða við verklok skal styrkhafi skila stjórn greinargerð um ráðstöfun styrks.
5.2 Ef styrkveiting er til lengri tíma eða um er að ræða áfangaskipta styrkveitingu skal skila framvinduskýrslu til stjórnar með reglulegum hætti.
6. Breytingar á vinnureglum stjórnar vegna styrkveitinga
6.1 Til breytinga á vinnureglum þessum þarf samþykki meirihluta stjórnar.
Reglur þessar voru samþykktar í stjórn Viðlagatryggingar Íslands þann 19. desember 2011 og tóku gildi sama dag.