19. apríl 2010 | 11:04
Eldgos - tjónstilkynningar
Viðlagatrygging Íslands bætir beint tjón af völdum eldgoss á húseignum og ennfremur á lausafé hafi eigendur tryggt það gegn bruna.
Einnig bætir Viðlagatrygging búfé og heyfeng sem tryggt er landbúnaðartryggingu sem innifelur brunatryggingu.
Vakin er athygli á að hægt verður að tilkynna tjón sem fram koma síðar, eða eru viðbótartjón við áður tilkynnt tjón eftir því sem þörf er á. Engu að síður eru íbúar hvattir til að tilkynna þau tjón sem nú eru sýnileg og vitað er um núna, til að hefja megi úrvinnslu þeirra.
Tilkynning tjóna:
Vátryggður hefur samband við vátryggingafélag sitt og tilkynnir tjón. Vátryggingafélag annast áframsendingu tilkynningar til Viðlagatryggingar.
Vátryggður tilkynnir tjón sitt beint til Viðlagatryggingar Íslands. Hægt er að hringja í síma 575-3300 eða með tölvupósti á vidlagatrygging@vidlagatrygging.is