ELDGOS Í GRÍMSVÖTNUM
Viðlagatrygging Íslands tekur við tilkynningum vegna allra skemmda sem verða af völdum gossins óháð því hvort tjónið falli undir bótaábyrgð Viðlagatryggingar eða ekki. Tilkynningar vegna tjóna sem falla utan bótaábyrgðar Viðlagatryggingar eru áframsendar til Þjónustumiðstöðvar almannavarna/samhæfingarstöðvar.
Mikilvægt er að í tjónstilkynningu komi fram eins greinargóðar upplýsingar um tjónið og kostur er. Mjög mikilvægt er að allar persónuupplýsingar fylgi tilkynningunni, nafn, kennitala, staðsetning, símanúmer og netfang. Tekið er við tilkynningum á netfangið vidlagatrygging@vidlagatrygging.is og í síma 575-3300 virka daga á milli kl. 9.00 og 16.00.